Ferill 889. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1328 — 889. mál.
Fyrirspurn
til matvælaráðherra um kornframleiðslu.
Frá Kristni Rúnari Tryggvasyni.
1. Hvenær hyggst ráðherra auglýsa styrki til fjárfestingar í kornframleiðslu?
2. Hyggst ráðherra halda hugmyndum um óhagnaðardrifið eignarhald á kornframleiðslu til streitu? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra útfæra fyrirkomulag styrkveitingar?
3. Til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa til að styrkja og endurnýja kornframleiðslu?
Skriflegt svar óskast.