Ferill 897. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1336 — 897. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um ríkisfang brotamanna.
Frá Sigurjóni Þórðarsyni.
1. Hvert er ríkisfang þeirra sem hafa verið sakfelld fyrir brot gegn 173. gr. a almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, og þeirra sem hafa verið sakfelld fyrir brot gegn ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, undanfarin 5 ár, sundurliðað eftir lagabálkum?
2. Hvert er ríkisfang þeirra sem hafa verið sakfelld fyrir kynferðisbrot, sbr. XXII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, undanfarin 5 ár, sundurliðað eftir viðeigandi ákvæðum?
3. Hvert er ríkisfang þeirra sem hafa verið ákærð fyrir manndráp og líkamsmeiðingar, sbr. XXIII. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, undanfarin 5 ár, sundurliðað eftir viðeigandi ákvæðum?
4. Hvert er ríkisfang þeirra sem hafa verið ákærð fyrir brot gegn frjálsræði manna, sbr. XXIV. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, undanfarin 5 ár, sundurliðað eftir viðeigandi ákvæðum?
5. Hvert er ríkisfang þeirra sem hafa verið ákærð fyrir brot gegn ákvæðum auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga, sbr. XXVI. kafla laga nr. 19/1940, undanfarin 5 ár, sundurliðað eftir viðeigandi ákvæðum?
Skriflegt svar óskast.