Ferill 979. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1442 — 979. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um útgreiddar barnabætur.
Frá Birni Leví Gunnarssyni.
1. Hversu margir foreldrar hafa verið einstæðir með börn yngri en 7 ára á undanförnum 5 árum, sundurliðað eftir árum?
2. Hversu margir foreldrar hafa verið einstæðir með börn á aldrinum 7–15 ára á undanförnum 5 árum, sundurliðað eftir árum?
3. Hversu margir foreldrar í sambúð eða hjónabandi voru með börn yngri en 7 ára á undanförnum 5 árum, sundurliðað eftir árum?
4. Hversu margir foreldrar í sambúð eða hjónabandi voru með börn á aldrinum 7–15 ára á undanförnum 5 árum, sundurliðað eftir árum?
5. Hversu miklar barnabætur voru greiddar til hvers hóps fyrir sig sem talinn er upp í 1.–4. tölul., sundurliðað eftir árum?
6. Hvernig skiptust útgreiddar barnabætur skv. 5. tölul. eftir tekjutíundum í hverjum hópi fyrir sig, sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.