Ferill 1011. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1476 — 1011. mál.
Fyrirspurn
til menningar- og viðskiptaráðherra um skýrslu starfshóps.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.
1. Hverjar voru niðurstöður skýrslu starfshóps, sem ráðherra skipaði í ágúst 2022, er skilaði skýrslu til ráðherra í apríl 2023 og var falið að skoða leiðir til að skapa eftirliti samkeppnis- og neytendamála nýja stjórnsýslulega stöðu innan stofnanakerfis ríkisins?
2. Hvers vegna hefur skýrsla starfshópsins ekki verið birt opinberlega?
3. Hvenær á að birta skýrslu starfshópsins?
Skriflegt svar óskast.