Ferill 1045. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.
Þingskjal 1524 — 1045. mál.
Skriflegt svar.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um brjóstaminnkunaraðgerðir.
Frá Diljá Mist Einarsdóttur.
1. Hvað líður samningaviðræðum Læknafélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um greiðsluþátttöku í brjóstaminnkunaraðgerðum fyrir þá skjólstæðinga sem hafa sjálfir þurft að greiða fyrir þær?
2. Hversu langur biðlisti er eftir brjóstaminnkunaraðgerðum á opinberum sjúkrastofnunum?
3. Hvaða kröfur eru gerðar um líkamsþyngd sjúklinga í brjóstaminnkunaraðgerðum? Eru þær kröfur sambærilegar þeim sem gerðar eru annars staðar á Norðurlöndum?
Skriflegt svar óskast.