Ferill 1109. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1666 — 1109. mál.
Fyrirspurn
til félags- og vinnumarkaðsráðherra um félagsaðstoð fyrir útlendinga sem sætt hafa niðurfellingu réttinda.
Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.
1. Hvaða félagsaðstoð er í boði fyrir útlendinga sem sætt hafa niðurfellingu réttinda á grundvelli 8. mgr. 33. gr. laga um útlendinga, nr. 80/2016?
2. Hver greiðir veitta félagsaðstoð fyrir einstaklinga í þessari stöðu?
3. Á hvaða lagagrundvelli byggist samkomulag ráðuneytisins við Rauða krossinn á Íslandi um tímabundið verkefni um neyðaraðstoð við útlendinga sem fengið hafa endanlega synjun á umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi?
4. Stendur til að framlengja samkomulagið? Ef svo er, hversu lengi?
5. Telur ráðherra fyrirkomulagið vænlegt til frambúðar?
6. Eru einhverjar breytingar á fyrirkomulaginu í undirbúningi í ráðuneytinu? Ef svo er, hvers eðlis eru fyrirhugaðar breytingar og hversu langt er undirbúningur þeirra kominn?
Skriflegt svar óskast.