Ferill 1112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1682  —  1112. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um flutning einstaklinga til Íraks og endurviðtöku.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu margir einstaklingar hafa verið fluttir til Íraks af hálfu íslenskra stjórnvalda gegn vilja sínum á undanförnum þremur árum?
     2.      Eru íslensk stjórnvöld í viðræðum við íröksk stjórnvöld um endurviðtöku írakskra ríkisborgara sem vísað hefur verið úr landi? Ef svo er, hvað líður þeim viðræðum og hverjar eru formlegar kröfur íslenskra stjórnvalda varðandi móttöku fólks í kjölfar endurviðtöku?


Skriflegt svar óskast.