Ferill 1113. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1683 — 1113. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um áhrif aðgerðaáætlunar um orkuskipti.
Frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur.
Hefur verið reiknað út hvaða áhrif aðgerðaáætlun um orkuskipti hefur á samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda með tilliti til skuldbindinga Íslands í loftslagsmálum, eins og kveðið er á um í aðgerð C.6 í þingsályktun um aðgerðaáætlun um orkuskipti, nr. 18/146? Hvar liggja þessir útreikningar fyrir?
Skriflegt svar óskast.