Ferill 1115. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1700 — 1115. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga á Akureyri.
Frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.
Hefur ráðherra í hyggju að skera niður starfsemi barna- og unglingageðteymis Sjúkrahússins á Akureyri eða breyta fyrirkomulagi starfseminnar? Ef svo er, hvernig verður geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga á þjónustusvæði Sjúkrahússins á Akureyri háttað í framhaldinu?
Munnlegt svar óskast.