Ferill 1006. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1742  —  1006. mál.




Svar


innviðaráðherra við fyrirspurn frá Maríu Rut Kristinsdóttur um uppbyggingu jarðganga á Vestfjörðum.


     1.      Kemur til greina að mati ráðherra að flýta áætluðum framkvæmdum við Súðavíkurgöng samkvæmt jarðgangaáætlun Vegagerðarinnar í ljósi þeirra aðstæðna sem íbúar Súðavíkur og nágrennis búa við vegna snjóflóða- og aurskriðuhættu?
    Í undirbúningi tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 sem nú er til umfjöllunar í umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis voru teknar saman forsendur fyrir tillögu að forgangsröðun jarðgangakosta sem til skoðunar hafa verið og birtast í þeirri jarðgangaáætlun sem kemur fram í tillögunni.
    Sú forgangsröðun tekur mið af markmiðum samgönguáætlunar um greiðar, öruggar, hagkvæmar og umhverfislega sjálfbærar samgöngur og jákvæða byggðaþróun.
    Rannsóknastofnun Háskólans á Akureyri mat alls 18 jarðgangakosti með tilliti til þessara þátta og má sjá þær niðurstöður í greinargerð þeirra frá því í júlí 2023. Við forgangsröðunina var jafnframt tekið tillit til þess hversu brýn verkefnin væru talin vera.
    Ráðuneytið telur að veigamikil rök þyrftu að koma til þess að breyta forgangsröðun jarðganga frá þeirri áætlun sem kemur fram í tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038 og byggist á framangreindri vinnu.

     2.      Hefur ráðherra íhugað að flýta jarðgöngum um Mikladal og Hálfdán til að tryggja íbúum svæðisins jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu og flugsamgöngum allan ársins hring?
    Ekki hafa komið fram neinar upplýsingar sem réttlæta breytingu á forgangsröðun jarðgangakosta enda er forgangsröðunin byggð á vönduðu heildarmati Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Akureyri á jarðgangakostum á Íslandi frá júlí 2023.
    Ráðuneytið telur því ekki ástæðu til að breyta forgangsröðun jarðgangakosta eins og þeir birtast í þingsályktunartillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2024–2038.