Ferill 1133. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1784  —  1133. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um heilbrigðisstarfsmenn sem starfa ekki við heilbrigðisþjónustu.

Frá Berglindi Ósk Guðmundsdóttur.


    Hversu margir heilbrigðisstarfsmenn með gilt starfsleyfi starfa ekki við heilbrigðisþjónustu? Svar óskast sundurliðað eftir heilbrigðisstéttum, sérgreinum og sveitarfélögum.


Skriflegt svar óskast.