Ferill 1139. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1797 — 1139. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um kaup á hergögnum.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hversu stór hluti af varnartengdum útgjöldum Íslands voru framlög í fjölþjóðlega sjóði sem kaupa hergögn eða á annan hátt framlög til kaupa á hergögnum? Óskað er upplýsinga um útgjöld síðustu 10 ár þar sem fram komi upphæðir, móttökuríki og hvaða búnaður var keyptur.
2. Hvar var ákvörðun tekin um framlög í hverju tilviki og með hvaða hætti var hún rædd á vettvangi Alþingis?
Skriflegt svar óskast.