Ferill 1141. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1806 — 1141. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um skýrslur um loftslagsmál.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvenær skilaði verkefnisstjórn síðast skýrslu um framgang aðgerðaáætlunar í loftslagsmálum, sem skal skilað árlega skv. 4. mgr. 5. gr. laga um loftslagsmál, nr. 70/2012?
2. Hver er ástæða þess að ráðherra hefur ekki flutt Alþingi skýrslu um stöðu loftslagsmála, sbr. 2. mgr. 5. gr. d sömu laga?
Skriflegt svar óskast.