Ferill 1145. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1812  —  1145. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um fjölskyldusameiningarleyfi.

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Hver hefur fjöldi dvalarleyfa á grundvelli fjölskyldusameiningar verið frá árinu 2013 að frádregnum endurnýjuðum dvalarleyfum á grundvelli fjölskyldusameiningar? Svar óskast sundurliðað eftir árum, þjóðerni og tengslum viðkomandi við umsækjanda.
     2.      Fyrir hversu mörg þessara dvalarleyfa hafa verið gefin út leyfi eða dvalarleyfisskírteini? Svar óskast sundurliðað eftir árum, þjóðerni og tengslum viðkomandi við umsækjanda.


Skriflegt svar óskast.