Ferill 1155. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1884 — 1155. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um loftslagsáhrif lagafrumvarpa.
Frá Andrési Inga Jónssyni.
1. Hvenær lauk ráðuneytið vinnu við leiðbeinandi viðmið til að meta loftslagsáhrif lagafrumvarpa, sbr. aðgerð G.6 í aðgerðaáætlun í loftslagsmálum frá árinu 2020?
2. Hvaða lagafrumvörp hafa verið metin sérstaklega miðað við áhrif á loftslag í samræmi við aðgerð G.6 í aðgerðaáætluninni?
Skriflegt svar óskast.