Ferill 1157. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1886  —  1157. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um flutning einstaklinga til Nígeríu og endurviðtöku.

Frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur.


     1.      Hversu margir einstaklingar hafa verið fluttir til Nígeríu af hálfu íslenskra stjórnvalda gegn vilja sínum á undanförnum þremur árum?
     2.      Hafa íslensk stjórnvöld náð samkomulagi við nígerísk stjórnvöld um endurviðtöku nígerískra ríkisborgara sem vísað hefur verið úr landi? Ef svo er, hverjar eru formlegar kröfur íslenskra stjórnvalda varðandi móttöku fólks í kjölfar endurviðtöku?


Skriflegt svar óskast.