Ferill 1161. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1915  —  1161. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á hafnalögum, nr. 61/2003 (Hafnabótasjóður).

Frá meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar (BjarnJ, HSK, IÓI, NTF, OPJ, VilÁ ).


1. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 3. mgr. 26. gr. laganna er Hafnabótasjóði heimilt, fram til 1. janúar 2025, að fjármagna framkvæmdir ríkisins án þess að þær séu tilgreindar í gildandi samgönguáætlun.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Umhverfis- og samgöngunefnd hafa borist upplýsingar þess efnis að nauðsynlega þurfi að ráðast í framkvæmdir á tilgreindum höfnum innan ársins 2024. Þar sem þær framkvæmdir koma ekki fram í samgönguáætlun sem samþykkt hefur verið á Alþingi, líkt og krafist er skv. 1. tölul. 3. mgr. 26. gr. hafnalaga, er Hafnabótasjóði óheimilt að fjármagna þær nauðsynlegu framkvæmdir ríkisins.
    Meiri hluti nefndarinnar telur því nauðsynlegt, svo að nýta megi fjármagn úr Hafnabótasjóði sem Alþingi hefur ráðstafað til hans, að við lögin verði bætt ákvæði til bráðabirgða þess efnis að ráðstafa megi fé úr sjóðnum til hinna nauðsynlegu framkvæmda án þess að efnisskilyrði 1. tölul. 3. mgr. 26. gr. sé fullnægt. Er þó áfram gert ráð fyrir því, í samræmi við 3. mgr. 26. gr., að samþykki ráðherra þurfi til og er lagt til að heimildin gildi til 1. janúar 2025.