Ferill 1165. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1931  —  1165. mál.




Fyrirspurn


til fjármála- og efnahagsráðherra um kostnað við framkvæmdir við Landspítala við Hringbraut.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við áformaðar framkvæmdir við Landspítala við Hringbraut?
     2.      Hver er uppsafnaður hönnunarkostnaður verkefnisins og hvernig skiptist hann á verkþætti?
     3.      Hvenær er áætlað að sjúkrahússtarfsemi geti hafist í nýbyggingum Landspítala?


Skriflegt svar óskast.