Ferill 1166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1932 — 1166. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um útgáfu leyfa til leigubifreiðaaksturs.
Frá Bergþóri Ólasyni.
1. Hvernig hefur útgáfa nýrra leyfa til leigubifreiðaaksturs skipst eftir þjóðerni rétthafa síðan lög um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022, tóku gildi?
2. Hversu mörg leyfi hafa verið gefin út síðan fyrrnefnd lög tóku gildi og hafa einhver þeirra verið afturkölluð eða lögð inn?
Skriflegt svar óskast.