Ferill 1167. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1933 — 1167. mál.
Fyrirspurn
til innviðaráðherra um svindl á ökuprófi.
Frá Bergþóri Ólasyni.
1. Hefur verið gripið til aðgerða vegna frétta af svindli manna á ökuprófi með notkun hjálpartækja, svo sem farsíma, og/eða með hjálp aðstoðarmanns?
2. Kemur til greina að ógilda réttindi þar sem svo háttaði til og láta viðkomandi endurtaka prófið?
Skriflegt svar óskast.