Ferill 1168. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1934 — 1168. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um áform um kolefnishlutleysi.
Frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
1. Hvernig ganga áform um kolefnishlutleysi Íslands eigi síðar en árið 2040 sem lögfest voru í júní 2021?
2. Hvert áætla stjórnvöld að árlegt hlutfall samdráttar frá grunnpunkti verði þar til áformum um kolefnishlutleysi hefur verið náð?
Skriflegt svar óskast.