Ferill 1178. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1953  —  1178. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um fjárveitingar til framkvæmda við Hornafjarðarfljót í samgönguáætlun.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Hverjar voru samþykktar fjárveitingar í fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2020–2024 til lagningar vegar og brúarsmíði við Hornafjarðarfljót?
     2.      Hversu miklum fjármunum hefur þegar verið varið til verkefnisins og hver er áætlaður heildarkostnaður þess?


Skriflegt svar óskast.