Ferill 1179. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


154. löggjafarþing 2023–2024.
Prentað upp.

Þingskjal 1954  —  1179. mál.
Leiðréttur texti.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um kostnað við rannsóknir á flugvallarstæði í Hvassahrauni.

Frá Bergþóri Ólasyni.


     1.      Hver er heildarkostnaður við rannsóknir á mögulegu flugvallarstæði í Hvassahrauni og hversu hátt hlutfall hans ber ríkissjóður?
     2.      Hvernig er kostnaður opinberra aðila við verkefnið metinn?
     3.      Er óbeinn kostnaður opinberra aðila metinn sem hluti af heildarkostnaði verkefnisins? Þar er m.a. átt við vinnu starfsmanna og annan kostnað sem kann að falla til innan stofnana og eftir atvikum opinberra hlutafélaga.


Skriflegt svar óskast.