Ferill 1183. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 1980 — 1183. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um þjónustu við einstaklinga með endómetríósu.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Hversu margir starfa í endómetríósuteymi kvennadeildar Landspítala og hver er faglegur bakgrunnur þeirra?
2. Hvað eru margir einstaklingar á biðlista eftir þjónustu hjá teyminu?
3. Hver hefur biðtími eftir þjónustu teymisins verið síðan það var sett á fót árið 2017? Svar óskast sundurliðað eftir árum og meðalbiðtíma, lengsta biðtíma og stysta biðtíma.
Skriflegt svar óskast.