Ferill 1192. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2018 — 1192. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um hvort bílastæðagjöld falli undir ferðakostnað sjúkratryggðra.
Frá Líneik Önnu Sævarsdóttur.
Kemur kostnaður vegna fyrirhugaðrar gjaldtöku á bílastæðum við innanlandsflugvelli til með að falla undir reglugerð nr. 1140/2019, um ferðakostnað sjúkratryggðra og aðstandenda þeirra innanlands, og fást endurgreiddur af Sjúkratryggingum Íslands?
Skriflegt svar óskast.