Ferill 1195. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2021 — 1195. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um greind tilfelli endómetríósu.
Frá Gísla Rafni Ólafssyni.
1. Hversu mörg tilfelli endómetríósu hafa greinst á Landspítala frá árinu 2017? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
2. Hversu mörg tilfelli endómetríósu hafa greinst á einkareknum heilbrigðisstofnunum frá árinu 2017? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Skriflegt svar óskast.