Ferill 1212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
154. löggjafarþing 2023–2024.
Þingskjal 2059 — 1212. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um umsækjendur um alþjóðlega vernd frá Gaza-svæðinu.
Frá Bergþóri Ólasyni.
1. Hvernig hafa stjórnvöld leitast við að koma í veg fyrir að hættulegt fólk frá Gaza-svæðinu misnoti lagaákvæði um alþjóðlega vernd til að hljóta slíka vernd hér á landi og flytjist til Íslands?
2. Eru dæmi þess eða hefur vaknað grunur um að meðal umsækjenda um alþjóðlega vernd frá Gaza-svæðinu sem flust hafa til Íslands hafi verið meðlimir eða stuðningsmenn Hamas-samtakanna?
Skriflegt svar óskast.