Ferill 521. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.








Lög



um breytingu á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og lögum um stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu).


________




I. KAFLI
Breyting á lögum um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.
1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Staðbundin veiðisvæði grásleppu eru:
                  1.      Suðurland – Faxaflói, frá línu réttvísandi austur frá Hvítingum 64°23,90 N 014°28,00 V að línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V.
                  2.      Breiðafjörður – Vestfirðir, svæði frá línu réttvísandi vestur frá Dritvíkurtanga (-flögum) 64°45,00 N 023°55,30 V að línu réttvísandi norður frá Horni 66°27,40 N 022°24,30 V.
                  3.      Húnaflói, frá línu réttvísandi norður frá Horni 66°27,40 N 022°24,30 V að línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V.
                  4.      Norðurland, frá línu réttvísandi norður frá Skagatá 66°07,20 N 020°05,90 V að línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi 66°22,70 N 014°31,90 V.
                  5.      Austurland, frá línu réttvísandi austur frá Fonti á Langanesi 66°22,70 N 014°31,90 V að línu réttvísandi austur frá Hvítingum 64°23,90 N 014°28,00 V.
     b.      Á eftir 1. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Ráðherra er heimilt með reglugerð að banna og takmarka veiðar tímabundið innan staðbundinna veiðisvæða, að hluta eða að öllu leyti, vegna hættu á meðafla sjávarspendýra og fugla.
     c.      Í stað tilvísunarinnar „7. gr. laga nr. 38 15. maí 1990, með síðari breytingum“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.

2. gr.

    2. málsl. 2. mgr. 21. gr. laganna fellur brott.

II. KAFLI
Breyting á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.
3. gr.

    Á eftir 7. gr. laganna kemur ný grein, 7. gr. a, svohljóðandi:
    Ráðherra er heimilt að úthluta aflamarki til fiskiskipa til veiða á grásleppu á grundvelli aflahlutdeildar skips á hverju staðbundnu veiðisvæði skv. 1. mgr. 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997. Grásleppuveiðar eru heimilar innan staðbundinna veiðisvæða, en þar geta aðeins veitt fiskiskip með aflahlutdeild í grásleppu og aflamark á staðbundnu veiðisvæði. Fiskiskip skal skráð innan veiðisvæðis og landa í löndunarhöfn innan staðbundins veiðisvæðis. Ef fiskiskip er flutt af staðbundnu veiðisvæði fellur aflahlutdeild skipsins í grásleppu niður.
    Ráðherra skal í reglugerð kveða nánar á um skipulag grásleppuveiða, veiðitíma og meðafla grásleppu við aðrar veiðar.

4. gr.

    Á eftir 6. mgr. 8. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Því aflamarki sem dregið er frá heildarafla grásleppu skv. 3. mgr. er ráðherra heimilt að úthluta gjaldfrjálst til þeirra sem eru að hefja grásleppuveiðar í fyrsta skipti. Fiskistofa annast framkvæmd við úthlutun aflamarks til nýliða. Ráðherra skal mæla nánar fyrir um úthlutun aflamarks til nýliða í reglugerð, m.a. um skilyrði til að teljast vera nýliði, skilyrði til úthlutunar, hámarksafla og ráðstöfun aflamarks sem ekki er úthlutað til nýliða innan hvers fiskveiðiárs. Fyrir úthlutun aflamarks til nýliða skal nýliði greiða þjónustugjald samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu, sbr. 5. gr. laga um Fiskistofu, nr. 36/1992.

5. gr.

    Á eftir 6. málsl. 6. mgr. 12. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Óheimilt er að framselja aflahlutdeild í grásleppu á skip sem ekki er skráð á sama staðbundna veiðisvæði grásleppu skv. 1. mgr. 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997.

6. gr.

    Við töflu í 1. mgr. 13. gr. laganna bætist:
Grásleppa 1,5%

7. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:
     a.      Við 6. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ráðherra er heimilt með reglugerð að undanskilja grásleppu frá ákvæði þessu ef aðstæður á markaði leiða til þess að afli verður óvenjulítill.
     b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Óheimilt er að flytja aflamark í grásleppu á milli skipa sem ekki eru skráð á sama staðbundna veiðisvæði grásleppu skv. 1. mgr. 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997. Ráðherra er heimilt í reglugerð að kveða á um flutning á aflamarki milli veiðisvæða á yfirstandandi veiðitímabili ef náttúrulegar aðstæður breytast verulega innan veiðisvæðis.

8. gr.

    Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
    Fiskistofa skal fyrir 1. mars 2025 úthluta fiskiskipum aflahlutdeild í grásleppu. Aflahlutdeild einstakra skipa skal ákveðin með tilliti til veiðireynslu sem fengin hefur verið á grundvelli réttar til grásleppuveiða og leyfis frá Fiskistofu sem skráð er á viðkomandi skip og nýtt innan viðmiðunartímabilsins. Við mat á veiðireynslu skal miða við þrjú bestu veiðitímabil leyfisins sem skráð er á skipið frá og með árinu 2018 til og með árinu 2022 að undanskildu árinu 2020.
    Þrátt fyrir 6. mgr. 12. gr. og 10. mgr. 15. gr. er framsal aflahlutdeilda í grásleppu óheimilt til 31. ágúst 2026.

9. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. september 2024.



_____________







Samþykkt á Alþingi 22. júní 2024.