Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 2131, 154. löggjafarþing 923. mál: umferðarlög (smáfarartæki o.fl.).
Lög nr. 92 4. júlí 2024.
Enginn má stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um flutning á hættulegum farmi skv. 1. mgr., þar á meðal um hlutverk stjórnvalda, flokkun hættulegs farms, öryggisbúnað, ábyrgð og skyldur, öryggisráðgjafa, réttindi (ADR-réttindi), þjálfun, eftirlit og upplýsingar og miðlun þeirra. Ráðherra er í reglugerð heimilt að mæla fyrir um bann við flutningi tiltekins farms eða í ákveðnum tilvikum að veita undanþágu frá reglum um flutning hættulegs farms.
Þingskjal 2131, 154. löggjafarþing 923. mál: umferðarlög (smáfarartæki o.fl.).
Lög nr. 92 4. júlí 2024.
Lög um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (smáfarartæki o.fl.).
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 3. gr. laganna:- C-liður 30. tölul. fellur brott.
- Á eftir 32. tölul. kemur nýr töluliður, svohljóðandi, og breytist röð annarra töluliða samkvæmt því: Smáfarartæki: Lítið ökutæki sem er vélknúið og án sætis, telst hvorki létt bifhjól né reiðhjól og er hannað til aksturs á hraða frá 6 km á klst. upp í 25 km á klst. Undir þessa skilgreiningu fellur t.d. vélknúið hlaupahjól og tvíhjóla ökutæki á einum öxli.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 42. gr. laganna:- Við 5. mgr. bætist: og smáfarartæki.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Sérreglur fyrir reiðhjól og smáfarartæki.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 43. gr. laganna:- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Undanþáguheimildir fyrir hjólreiðamenn og ökumenn smáfarartækja.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 44. gr. laganna:- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Um flutning barna á smáfarartæki fer eftir reglum sem ráðherra setur skv. 80. gr.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
- Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Börn, reiðhjól og smáfarartæki.
5. gr.
Fyrirsögn VII. kafla laganna verður: Sérreglur fyrir reiðhjól og smáfarartæki.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 49. gr. laganna:- Í stað orðanna „2. og 3. mgr.“ í 5. mgr. kemur: 2., 3. eða 7. mgr.
- Á eftir 6. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
7. gr.
Á eftir 2. mgr. 50. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Enginn má stjórna eða reyna að stjórna smáfarartæki ef hann er undir áhrifum ávana- og fíkniefna eða lyfja skv. 1. mgr.
8. gr.
Á eftir orðinu „ökutækis“ í inngangsmálslið 1. mgr. 52. gr. laganna kemur: eða smáfarartækis.9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 58. gr. laganna:- Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Á eftir d-lið 11. mgr. kemur nýr stafliður, svohljóðandi: brot á prófreglum í ökuprófum og viðurlög við þeim.
10. gr.
Í stað tilvísunarinnar „7. mgr.“ í 2. málsl. 4. mgr. 67. gr. laganna kemur: 8. mgr.11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 69. gr. laganna:- Á eftir 4. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
- Á eftir 1. málsl. lokamálsgreinar kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Vinnueftirlitið annast þó markaðseftirlit með smáfarartækjum.
12. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 72. gr. laganna:- Við 4. málsl. 1. mgr. bætist: og smáfarartæki.
- Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
13. gr.
Á eftir orðinu „skoðun“ í c-lið 3. mgr. 74. gr. laganna kemur: menntun þeirra og endurmenntun.14. gr.
Við 1. mgr. 79. gr. laganna bætist: og akstur smáfarartækis.15. gr.
4. mgr. 81. gr. laganna orðast svo:Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um flutning á hættulegum farmi skv. 1. mgr., þar á meðal um hlutverk stjórnvalda, flokkun hættulegs farms, öryggisbúnað, ábyrgð og skyldur, öryggisráðgjafa, réttindi (ADR-réttindi), þjálfun, eftirlit og upplýsingar og miðlun þeirra. Ráðherra er í reglugerð heimilt að mæla fyrir um bann við flutningi tiltekins farms eða í ákveðnum tilvikum að veita undanþágu frá reglum um flutning hættulegs farms.
16. gr.
Við 4. mgr. 86. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Ríkisaðila er, með samþykki ráðherra, heimilt að setja reglur um notkun stöðureita og gjaldtöku fyrir hana á landi í eigin umráðum.17. gr.
Í stað orðanna „1.–5. mgr. og 7. mgr.“ í 2. málsl. 1. mgr. 95. gr. laganna kemur: 1.–5., 7. og 8. mgr.18. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.19. gr.
Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á ákvæði til bráðabirgða XXIV í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988:- Á eftir orðunum „létts bifhjóls“ í 1. málsl. 9. mgr. kemur: eða smáfarartækis.
- 3. tölul. 10. mgr. orðast svo: Af reiðhjóli með stig- eða sveifarbúnaði að hámarki 48.000 kr. Reiðhjól skal falla undir a-lið 30. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vörulið 8712 í tollskrá.
- Við 10. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Af smáfarartæki sem knúið er rafmagni að hámarki 48.000 kr. Smáfarartæki skal falla undir 33. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vörulið 8711 í tollskrá.
- Á eftir orðunum „létts bifhjóls“ í inngangsmálslið 11. mgr. kemur: smáfarartækis.
- 3. tölul. 11. mgr. orðast svo: Af reiðhjóli með stig- eða sveifarbúnaði að hámarki 200.000 kr. Reiðhjól skal falla undir a-lið 30. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vörulið 8712 í tollskrá.
- Við 11. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Af smáfarartæki sem knúið er rafmagni að hámarki 200.000 kr. Smáfarartæki skal falla undir 33. tölul. 1. mgr. 3. gr. umferðarlaga, nr. 77/2019, og vörulið 8711 í tollskrá.
Samþykkt á Alþingi 22. júní 2024.