Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
81. löggjafarþing 1960–61.
Þskj. 351  —  32. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um athuganir á hafnarframkvæmdum.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta fram fara rannsókn á möguleikum til hafnargerðar í Þykkvabæ í Rangárvallasýslu og við Dyrhólaey í Vestur-Skaftafellssýslu. Rannsóknum þessum verði hraðað svo sem aðstæður leyfa.


Samþykkt á Alþingi 8. febrúar 1961.