Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
81. löggjafarþing 1960–61.
Þskj. 376  —  90. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um skipulagningu fiskveiða með netjum.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa setningu reglna um takmörkun á veiðitíma, veiðarfæranotkun og veiðisvæðum þeirra skipa, er fiskveiðar stunda með netjum. Við þann undirbúning verði haft samráð við fiskmatsráð, Fiskifélag Íslands, fiskideild atvinnudeildar háskólans og samtök útvegsmanna og sjómanna.
    Ef í ljós kemur, að lagasetningar þurfi um þetta efni, verði frumvarp þar að lútandi lagt fyrir Alþingi.


Samþykkt á Alþingi 15. febrúar 1961.