Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
81. löggjafarþing 1960–61.
Þskj. 692  —  195. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um hagnýtingu skelfisks.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fram fara í samráði við Fiskifélag Íslands og fiskideild atvinnudeildar háskólans rannsókn á skelfisksmagni við strendur landsins. Jafnframt verði athugaðir möguleikar á hagnýtingu skelfisks til útflutnings og atvinnuaukningar í landinu.


Samþykkt á Alþingi 27. marz 1961.