Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
82. löggjafarþing 1961–62.
Þskj. 403  —  61. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um undirbúningsnámskeið til tæknifræðimenntunar.



    Alþingi skorar á ríkisstjórnina að láta athuga, á hvern hátt heppilegast verði að koma fyrir hérlendis tæknifræðikennslu fyrir iðnaðarmenn, sem í vaxandi mæli leita til erlendra tækniskóla. Sé í því sambandi athugað, hvort unnt sé að koma upp tæknifræðideild við Vélskóla Íslands eða Iðnskólann í Reykjavík. Þar til unnt verður að veita slíka fræðslu hér á landi, stuðli ríkisstjórnin í samráði við Tæknifræðingafélag Íslands að undirbúningsnámskeiðum fyrir þá, er hafa í huga að komast á tæknifræðiskóla erlendis.

Samþykkt á Alþingi 14. marz 1962.