Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
82. löggjafarþing 1961–62.
Þskj. 735  —  40. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um verðtryggingu lífeyris.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fara fram athugun á því, hvernig framkvæma megi verðtryggingu frjálsra lífeyristrygginga, bæði lífeyrissjóða verkalýðsfélaga og annarra launþegasamtaka og lífeyristrygginga á vegum einstaklinga. Verði niðurstöður þeirrar athugunar lagðar fyrir Alþingi.


Samþykkt á Alþingi 11. apríl 1962.