Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
83. löggjafarþing 1962–63.
Þskj. 726  —  112. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um fiskveg um Brúafossa í Laxá í Þingeyjarsýslu.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera athugun á aðstöðu til að gera fiskveg (laxastiga) upp yfir Brúafossa í Laxá í Þingeyjarsýslu. Jafnframt felur það henni að láta gera þar fiskveg, ef ráðlegt þykir að áliti manna, er sérfræðiþekkingu hafa í þessu efni. Nauðsynlegur kostnaður greiðist úr ríkissjóði, að svo miklu leyti sem hann fæst ekki greiddur annars staðar frá.

Samþykkt á Alþingi 19. apríl 1963.