Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
86. löggjafarþing 1965–66.
Þskj. 261  —  17. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um markaðsrannsóknir og sölustarfsemi

í þágu útflutningsatvinnuveganna.


    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta athuga í samráði við fulltrúa atvinnuveganna, á hvern hátt megi efla markaðsrannsóknir og markaðsleit í þágu útflutningsatvinnuvega þjóðarinnar, og verði niðurstöður þessara athugana lagðar fyrir næsta reglulegt Alþingi.


Samþykkt á Alþingi 23. febrúar 1966.