Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
89. löggjafarþing 196869.
Þskj. 532 158. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um aðstoð við fiskiskip, sem stunda veiðar við Grænland.
Neðri deild Alþingis ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta nú þegar gera könnun á því, hvað fyrirhugað er að senda mörg fiskiskip til veiða við Grænland á komandi vori og sumri. Jafnframt fari fram athugun á því, hvað nauðsynlegt er að gera til þess að greiða fjárhagslega fyrir þessari útgerð, veita henni aðstoð með læknisþjónustu, viðgerðarþjónustu, birgðaflutninga og upplýsingar um veður og hreyfingu hafíss.
Samþykkt í neðri deild Alþingis 22. apríl 1969.