Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
89. löggjafarþing 196869.
Þskj. 561 147. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um athugun á auknum siglingum.
Neðri deild Alþingis ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa þriggja eða fimm manna nefnd til athugunar á, hvort mögulegt sé og hagkvæmt fyrir Íslendinga að koma sér upp auknum skipastól til vöruflutninga milli erlendra hafna til atvinnuaukningar og gjaldeyrisöflunar. Ef svo telst, skal nefndin athuga sérstaklega, eftir hvaða leiðum því yrði helzt við komið, og þá einnig, hvaða stærð skipa væri talin arðvænlegust og bezt henta.
Samþykkt í neðri deild Alþingis 25. apríl 1969.