Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
89. löggjafarþing 1968–69.
Þskj. 765  —  23. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um skóla- og námskostnað.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að gera yfirlit um kostnað ríkisins við skyldunám og framhaldsskóla. Skal af yfirlitinu mega sjá, hver hann er:
     a)      við heimavistarskóla,
     b)      við aðra skóla.
    Einnig komi fram af yfirlitinu, hver aðstöðumunur nemenda er, sem verða að vista sig langtímum saman utan heimila sinna við nám, og hinna, sem sækja skóla frá heimilum sínum og hafa þar alla vist.
    Stefnt verði að því, að yfirlit þetta verði lagt fyrir næsta reglulegt Alþingi.


Samþykkt á Alþingi 14. maí 1969.