Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
90. löggjafarþing 1969–70.
Þskj. 299  —  19. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um vísitölu byggingarkostnaðar.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta endurskoða lög nr. 25 frá 1957, um vísitölu byggingarkostnaðar. Jafnframt verði Hagstofu Íslands og Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins falið að reikna út nýjan vísitölugrundvöll, er taki gildi eigi síðar en á árinu 1971.


Samþykkt á Alþingi 28. janúar 1970.