Ferill 51. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 856  —  51. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um rannsókn á jafnrétti þegnanna í íslenzku þjóðfélagi.




    Alþingi skorar á ríkisstjórnina að láta framkvæma rannsókn á jafnrétti þegnanna í íslenzku þjóðfélagi. Sérstaklega skal rannsóknin beinast að því, hvernig háttað er raunverulegu jafnrétti karla og kvenna að því er varðar menntun, störf, launakjör og hvers kyns þátttöku í félagslegum verkefnum. Jafnframt skal kannað, hverjar breytingar á gerð þjóðfélagsins gætu stuðlað að því að auka jafnrétti manna. Að rannsókn lokinni skulu niðurstöður hennar birtar.


Samþykkt á Alþingi 5. apríl 1971.