Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 861  —  112. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um eflingu kalrannsókna á Akureyri.




    Alþingi ályktar að beina því til ríkisstjórnarinnar að láta endurskoða rannsóknakerfi landbúnaðarins, sérstaklega með það í huga, að vænlegra sé til árangurs að efla sjálfstæði tilraunastöðvanna í landsfjórðungunum um staðbundin verkefni og dreifðar tilraunir og að höfuðstöðvar kalrannsókna verði á Akureyri.


Samþykkt á Alþingi 5. apríl 1971.