Ferill 114. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 862 — 114. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um rannsókn á möguleikum á útflutningi á hreinu neyzluvatni.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um, að rannsókn verði gerð á möguleikum á útflutningi hreins vatns í stórum stíl frá Íslandi. Niðurstöður þessara athugana verði lagðar fyrir Alþingi svo fljótt sem verða má.
Samþykkt á Alþingi 5. apríl 1971.