Ferill 194. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 866 — 194. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um ráðstafanir vegna skorts á hjúkrunarfólki.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að gera ráðstafanir til þess að ráða bót á skorti hjúkrunarfólks til starfa í landinu.
Samþykkt á Alþingi 5. apríl 1971.