Ferill 81. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


93. löggjafarþing 1972–73.
Þskj. 506  —  81. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um bætta aðstöðu nemenda landsbyggðarinnar,


sem sækja verða sérskóla á höfuðborgarsvæðinu.




     Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því, að komið verði á fót mötuneytum og heimavistum á vegum hins opinbera, sem ætlaðar verði þeim nemendum af landsbyggðinni, sem sækja verða þá sérskóla í Reykjavík, er ekki starfa annars staðar á landinu. Í þessu sambandi verði m.a. kannað, hvort ekki komi til greina að semja við starfandi hótel um slíkan rekstur.

Samþykkt á Alþingi 3. apríl 1973.