Ferill 50. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


93. löggjafarþing 1972–73.
Þskj. 646  —  50. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um samstarf Íslendinga, Norðmanna og Færeyinga að fiskveiðum og fisksölu.




    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir viðræðum milli Íslendinga, Færeyinga og Norðmanna um samstarf þessara þjóða að skynsamlegri hagnýtingu fiskimiðanna á Norðaustur-Atlantshafi, verndun fiskistofna og að fisksölumálum. Jafnframt verði athugað, með hvaða hætti Grænlendingar geti orðið aðilar að slíku samstarfi.


Samþykkt á Alþingi 10. apríl 1973.