Ferill 61. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
93. löggjafarþing 1972–73.
Þskj. 742 — 61. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um verðaukaskatt af lóðum og lendum.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að undirbúa löggjöf um verðaukaskatt, sem lagður skal á sölu fasteigna, annarra en íbúðarhúsnæðis, atvinnurekstrarhúsnæðis og ábýlisjarða.
Skal markmið löggjafarinnar vera að skattleggja sölu lóða og lendna, sem hækkað hafa í verði án tilverknaðar eigenda umfram almennar verðhækkanir.
Skattur þessi renni til sveitarfélaga.
Samþykkt á Alþingi 14. apríl 1973.