Ferill 96. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
94. löggjafarþing 1973–74.
Þskj. 591 — 96. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um athugun á breytingu á fasteignamatslögum
og lögum um sambýli í fjölbýlishúsum.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta athuga um breytingu á fasteignamatslögum og lögum um sambýli í fjölbýlishúsum, er feli í sér eftirfarandi breytingar frá gildandi lögum:
1) að unnt verði að meta hverja íbúð sem sérstaka einingu, en nafn hússins eða númer, ásamt lóðareiningu, ekki eitt látið ráða án tillits til þess, hve margar íbúðir eru byggðar á sömu lóð;
2) að tryggja, að í sambýlishúsum verði ekki aðrar íbúðir auglýstar til uppboðs eða aðfarar vegna vangoldinna gjalda en þær, sem í skuld eru hverju sinni.
Samþykkt á Alþingi 26. mars 1974.