Ferill 25. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


94. löggjafarþing 1973–74.
Þskj. 871  —  25. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


um byggingu skips til Vestmannaeyjaferða.




    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að ákveða nú þegar að láta byggja nýtt skip til Vestmannaeyjaferða og leita tilboða í smíði þess á grundvelli tillögu stjórnskipaðrar nefndar um samgöngumál Vestmanneyinga, sem fram kemur í álitsgjörð nefndarinnar til samgönguráðuneytisins.


Samþykkt á Alþingi 7. maí 1974.