Ferill 236. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


94. löggjafarþing 1973–74.
Þskj. 872  —  236. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


um framkvæmd iðnþróunaráætlunar.




    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina hraða framkvæmd þeirrar iðnþróunaráætlunar, sem sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa lagt fram við ríkisstjórnina, bæði að því er varðar tæknilega uppbyggingu iðnaðarins og að því er varðar markaðsmál atvinnuvegarins, vegna útflutnings iðnaðarvara.


Samþykkt á Alþingi 7. maí 1974.